#46. Tilkynningar SP-Fjármögnunar til FME um starfsleyfisskylda starfsemi sína

Þann 3. ágúst sl. fékk ég svar frá Fjármálaeftirlitinu vegna fyrirspurnar minnar þ. 26. júní sl. vegna starfsleyfis SP-Fjármögnunar.  Í fyrirspurninni setti ég fram 4 spurningar, þar af eina í 2 liðum, um upplýsingagjöf SP-Fjármögnunar hf. til Fjármálaeftirilitsins í kjölfar setningar laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.  Spurningarnar og svörin eru eftirfarandi:

1.  Vísað er til setningu laga nr. 161/2002.  Undirritaður óskar eftir að fá upplýsingar um hvort SP-Fjármögnun hf. hafi á sínum tíma sent FME tilkynningu um starfsemi sína eins og fyrirtækinu bara að gera innan sex mánaða frá setningu laganna 1. janúar 2003, sbr. 2. og 3. mgr. bráðabirgðaákvæðis I?

Svar: Þann 28. febrúar 2003 sendi Fjármálaeftirlitið starfandi viðskiptabönkum, sparisjóðum, lánastofnunum öðrum en viðskiptabönkum og sparisjóðum, þ.á m. SP-Fjármögnun hf., rafeyrisfyrirtækjum, verðbréfafyrirtækjum og verðbréfamiðlunum dreifibréf meðal annars þess efnis að þau skyldu innan sex mánaða eða fyrir 1. júlí 2003 tilkynna Fjármálaeftirlitinu hvaða starfsemi samkvæmt 3. gr. og IV. kafla laga nr. 161/2003 um fjármálafyrirtækja (ffl.) þau stunduðu við gildistöku laganna, sbr. ákvæði til bráðabirgða I í lögunum. Dreifibréfinu fylgdi eyðublað sem fyrirtækjunum bar að fylla út.  Sjá meðfylgjandi skjöl í viðhengi við tölvubréfið.

2.   Ef svarið við spurningu 1. er nei og engar upplýsingar komu frá SP-Fjármögnun hf. að fyrra bragði, er óskað svara FME hvort, og þá hvenær, stofnunin fór fram á upplýsingar frá fyrirtækinu á ásættanlegu formi um hvað starfsemi það stundaði við útgáfu laganna, eins og bar að gera innan sex mánaða frá setningu þeirra?

Svar:  Vísast til svars Fjármálaeftirlitsins við fyrstu fyrirspurn yðar.

3.   Ef svarið við spurningu 2. er já, fékk FME svör frá SP-Fjármögnun hf. við erindum sínum og þá hvenær slík svör bárust?

Svar:  SP-Fjármögnun hf. tilkynnti Fjármálaeftirlitinu hvaða starfsemi samkvæmt 3. gr. og IV. kafla ffl. það stundaði við gildistöku laganna með útfylltu eyðublaði, dags. 5. maí 2003, sem barst stofnuninni þann 6. maí sama ár. Sjá meðfylgjandi skjal í viðhengi við tölvubréfið.

4.   Ennfremur er óskað eftir upplýsingum um hvort SP-Fjármögnun hf. hafi einhvern tímann á tímabilinu 2002-2010:

a.       Óskað eftir breytingu á starfsleyfi sínu til að hefja nýja starfsemi?        

Svar: SP-Fjármögnun hf. óskaði ekki eftir breytingu á starfsleyfi sínu eða auknum starfsheimildum á árunum 2002-2010.

b.      Verið hafnað breytingu á starfsleyfi sínu í framhaldi beiðnar um slíkt vegna nýrrar starfsemi?

Svar:  Vísast til svars Fjármálaeftirlitsins við a-lið fjórðu fyrirspurnar yðar.

Einnig var óskað afrita af öllum upplýsingum sem SP-Fjármögnun hf. sendi FME á árunum 2001-2008 til að útlista hvaða starfsemi fyrirtækið stundaði á nefndu árabili.  

Á árabilinu 2003-2006 sendi SP-Fjármögnun hf. 5 tilkynningar til Fjármálaeftirlitsins um starfsleyfiskylda starfsemi sína.  Aðrar tilkynningar um starfsemina voru ekki sendar Fjármálaeftirlitinu.  Við skoðun þeirra gagna sést að SP-Fjármögnun hf . tilkynnti Fjármálaeftirlitinu ekki að það stundaði viðskipti fyrir eigin reikning með erlendan gjaldeyri, framvirka samninga eða gengisbundin bréf.  Þó sýna ársreikningar félagsins skýrt að félagið stundaði viðskipti með erlendan gjaldeyri og framvirka gjaldmiðlasamninga í stórum stíl.  Eins og við vitum var helsta afurð fyrirtækisins gengistryggðir lánasamningar sem í mínum huga eru ekkert annað en gengisbundin viðskiptabréf.  Undir tilkynningarnar skrifar Pétur Gunnarsson, bróðir Kjartans Georgs Gunnarssonar framkvæmdastjóra. 

Í viðurlagakafla laga nr. 161/2002 segir í 110. gr. um stjórnvaldssektir:

Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem brýtur gegn:

1. 3. gr. um að starfsleyfisskyld starfsemi skuli ekki stunduð án starfsleyfis,

2. 8. gr. um tilkynningar um breytingar á áður skráðum upplýsingum um fjármálafyrirtæki,......

Sektir sem lagðar eru á einstaklinga geta numið frá 10 þús. kr. til 20 millj. kr. Sektir sem lagðar eru á lögaðila geta numið frá 50 þús. kr. til 50 millj. kr. Við ákvörðun sekta skal m.a. tekið tillit til alvarleika brots, hvað það hefur staðið lengi, samstarfsvilja hins brotlega aðila og hvort um ítrekað brot er að ræða. Ákvarðanir um stjórnvaldssektir skulu teknar af stjórn Fjármálaeftirlitsins og eru þær aðfararhæfar.

Þá segir í 112. gr. b. Sektir eða fangelsi:

„Það varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, liggi þyngri refsing ekki við broti samkvæmt öðrum lögum, að brjóta gegn ákvæðum:

1.  3. gr. um að starfsleyfisskyld starfsemi skuli ekki stunduð án starfsleyfis,"

Ég hef í kjölfar ofangreindrar fyrirspurnar sent Fjármálaeftirlitinu eftirfarandi spurningu: 

„Þar sem fjármálafyrirtækjum var gert skylt frá 1.janúar 2003, með setningu laga nr. 161/2002, að tilkynna FME ef það ætlaði að hefja nýja starfsemi, og SP-Fjármögnun hf. hefur ekki tilkynnt Fjármálaeftirlitinu að það stundi viðskipti með ofangreindar fjármálaafurðir, má þá ekki líta svo á að SP-Fjármögnun hf. hafi gerst brotlegt við bráðabirgðaákvæði I með því að stunda starfsemi sbr. 7. lið b-d, sem það:

      a. segist ekki stunda sbr. afrit af eyðublöðum 2 þar að lútandi, og

      b. hóf að stunda eða stundaði án lögbundinnar tilkynningar til FME?

Ég vænti þess að nokkur tími líði þar til Fjármálaeftirlitið svari þessari spurningu efnislega en ég mun greina frá svarinu hér á blogginu þegar það berst.


mbl.is SP-Fjármögnun braut lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Þetta er flott Erlingur og mér finnst þetta kalla á úttekt Ríkisendurskoðunar á Fjármálaeftirlitinu.

Marinó G. Njálsson, 6.8.2010 kl. 13:55

2 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Satt segirðu Marinó. Það er margt rotið í þeim Fílabeinsturni. Spurningin er: Hver getur beðið um slíka úttekt? Getur almeningur gert það?

Erlingur Alfreð Jónsson, 6.8.2010 kl. 22:20

3 identicon

Á þetta ekki heima hjá viðskiptanefnd alþingis?

Geir Birgir Guðmundsson (IP-tala skráð) 9.8.2010 kl. 13:28

4 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Birgir, ég hef með skriflegu erindi vakið athygli efnahags-og viðskiptanefndar, meðal annarra, á framferði SP. Einnig fékk ég tölvupóst frá fyrrv. ráðuneytisstjóra Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins áður en hún lét af störfum þar sem hún sagði að nýjar upplýsingar hafi komið fram um starfsleyfið. Ég er að reyna fá afrit af þeim upplýsingum til að glöggva mig á um hvað er verið að ræða þar, því ég veit ekki í hvað er verið að vísa þar.

Erlingur Alfreð Jónsson, 9.8.2010 kl. 15:18

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Frábær eftirfylgni hjá þér Erlingur. Gefumst ekki upp fyrr en þessir glæpamenn eru komnir á bak við lás og slá!

Guðmundur Ásgeirsson, 10.8.2010 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband