Bloggfærslur mánaðarins, október 2011

#139. Þetta verður fróðleg niðurstaða....Kemst eignarhald bankanna loksins í dagsljósið?

Eignarhald bankanna hefur oft verið rætt en lítil niðurstaða fengist, alla vega opinberlega. Skv. upplýsingum Fjármálaeftirlitsins frá fyrr í sumar eru nýju bankarnir, Arion banki og Íslandsbanki, í eigu eignarhaldsfélaga, sem aftur eru í eigu gömlu bankanna, Kaupþings og Glitnis. Ég veit ekki til að þetta hafi breyst.

Ég hef ítrekað beðið skilanefnd Glitnis um svör hver staða míns litla eignarhluta í Glitni banka er en til þessa hefur ekkert efnislegt svar komið. Fjármálaeftirlitið sagði mér að eignarhluturinn hefði ekki verið yfirtekinn né útþynntur þannig að ég tel að hann sé því enn til staðar. Skv. lögum um fjármálafyrirtæki lýkur skilanefnd fjármálafyrirtækis störfum með því að setja það í gjaldþrotaskipti eða skila því aftur til hluthafa.

Kröfuhafar hafa aldrei tekið yfir þá eignarhluti sem voru skráðir við fall bankanna í október 2008. Gömlu bankarnir eru því að mínu mati enn í eigu hluthafa, ekki kröfuhafa. Allt annað tal er því miður bull.

Nú kemur í ljós hversu vel fjölmiðlar halda vöku sinni þegar niðurstaða er fengin.


mbl.is Vill láta skoða eignarhaldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

#138. Frábær sigur Íslands! Er Ólafur loks á réttri leið með liðið?

Frábær sigur Íslands á Portúgölum í Evrópukeppninni, liðið vann seinni hálfleikinn 3:2! Hvers konar fréttamennska er þetta?! Er þetta einhver ný mæling á árangri? Hvort lið "vinnur" fyrri eða seinni hálfleik? Á þá ekki bara strax að bjóða Ólafi nýjan samning? Hann er greinilega á réttri leið með liðið. Vann síðustu 45 mínúturnar!
mbl.is Þrjú mörk gegn Portúgal en 5:3 tap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

#137. Laga þarf lögin um vaxtareikning lána!

Árni Páll ætti að byrja á því að laga lög nr. 151/2010 um vaxtareikning lána og meinta heimild fjármálafyrirtækja að endurreikna vexti og innheimta greiðslur vegna liðins tíma. Hann talar meira um hvað hann hefði viljað gera en minna um það sem hann ætlar að gera í skuldamálum heimila, og þess síður hvernig hann ætlar að gera það.
mbl.is Vill afskrifa meira en minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband