#69. SP-Fjármögnun hf. þakkar fyrir þolinmæðina en hvenær biðjast þeir afsökunar?!!.

Í tillkynningu á heimasíðu sinni þakkar SP-Fjármögnun viðskiptamönnum sínum þolinmæðina vegna endurútreiknings á viðskiptasamningum fyrirtækisins.  Henni lýkur með svohljóðandi orðum:

"Að endingu viljum við þakka viðskiptavinum okkar fyrir þá þolinmæði sem þeir hafa sýnt okkur á þessum erfiðu tímum og vonum að okkar samstarf verði farsælt í framtíðinni."

Hvílík hræsni!

Hvernig væri fyrir SP að byrja á að biðja viðskiptavini sína afsökunar á því óréttlæti sem fyrirtækið sýndi við harkalega innheimtu viðskiptasamninga þess???  Á svikunum með ólöglegum lánasamningum og óréttmætum samningsskilmálum þeirra?  Á innheimtuaðferðum handrukkara þess?

Hversu margir einstaklingar og fyrirtæki hafa orðið fyrir barðinu á óþolinmæði SP-Fjármögnunar hf. og tapað bílum og tækjum og fjármunum í baráttu sinni við þetta glæpafyrirtæki?  Þrátt fyrir að ítrekað hafi verið bent á að gjörðir þeirra samræmdust ekki landslögum.  Hvenær biðjast þeir afsökunar á því að ljúga að yfirvöldum?  Sem er reyndar refsivert athæfi.  Sjá rökstuðning hér og hér.

Það verður sennilega margfrosið í neðra áður en við sjáum iðrun í Sigtúninu.


mbl.is SP hefur lokið fyrsta áfanga endurútreiknings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eftir að lögfraeðingur SP fjármögnunar bauð 75% afslátt af kröfu sem var hafnað þurfti hann að fella málið niður þar sem SP skuldaði en ekki öfugt

Björn Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.10.2010 kl. 15:59

2 identicon

  Af hverju ganga forsvarsmenn þessara bófafyrirtækja lausir ennþá,þetta eru glæpamenn sem stunduðu skipulagða glæpastarfsemi í fjölda ára,í öllum siðuðum þjóðfélögum væri búið að loka þessa drullusokka inni fyrir lifandi löngu.                 

magnús steinar (IP-tala skráð) 7.10.2010 kl. 21:35

3 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Ég bara hreinlega skil ekki hvernig fyrirtæki gat platað fólk til þess að skrifa undir samningar sem voru/eru ólöglegir frá upphafi hjá fyrirtækjum sem augljóslega plataði fólk í krafti stöðu sinnar komast upp með það - og ENDA Í LÖGLEGUM GRÓÐA!  ...sem bitnar á fórnarlambinu í skjóli yfirvalda!

Ég tók engin svona lán, né önnur verðtryggð lán, en mér blöskrar hvernig fólk lætur fara með sig. Ef mér væri nauðgað, á ég þá að borga brotvalda skaðabætur því að ég var ekki móttækilegur? Þetta er djöfulsins tvískinnungur þjóðinni til óheilla.

Sumarliði Einar Daðason, 9.10.2010 kl. 01:09

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta eru djöfuls fordómar og mismunun. Ef starfsmenn þessa fyrirtækis myndu ganga í leðurgöllum í stað jakkafata væri búið að senda sérsveitina á staðinn til að loka sjoppunni með valdi.

Guðmundur Ásgeirsson, 10.10.2010 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband