#100. Eru lánshæfisfyrirtækin svikamylla?

Sífellt er í fréttum fjölmiðla klifað á einkunnum Moody´s, Standard & Poors og Fitch Ratings á lánshæfi íslenska ríkisins, og annarra ríkja, sem þessar einkunnir séu heilagur sannleikur.  Mikið er vald þessara fyrirtækja ef svo er.  En hver eru þessi fyrirtæki og er eitthvað opinbert eftirlit með þeim?  Sé þeim flett upp á Wikipedia kemur í ljós að þetta eru bandarísk fyrirtæki að uppruna.

Moody´s var stofnað 1909 af John Moody.  Það hefur nú 40% markaðshlutdeild á „lánshæfismarkaðnum“, hvaða markaður sem hann nú er.  Hagnaður Moody´s árið 2010 var 407 milljónir dollara (46,5 milljarðar íslenskra króna á gengi SÍ).

Standard & Poors rekur sögu sína allt aftur til 1860 og er þar með elst þessara 3ja fyrirtækja.  S&P var kept 1966 af McGraw-Hill fyrirtækjasamsteypunni.  Tekjur S&P árið 2009 var 2,6 milljarður dollara eða 296 milljarðar íslenskra króna.

Fitch Ratings er hinsvegar yngst, var stofnað 1924 og tengdist síðar Standard & Poors.

Saman voru þau með um 94% markaðshlutdeild árið 2004.

Siðferði þessara fyrirtækja hefur verið dregið í efa.  Árið 2004 kom fram í Washington Post að þessi fyrirtæki eru algjörlega sjálfala og setja sínar eigin reglur og aðferðarfræði, sem hefur leitt til misnotkunar.  Moody´s til dæmis kúgaði Compuware, bandarískan hugbúnaðarframleiðanda í Detroit sem hafði greitt 225.000 dollara fyrir lánshæfismat frá Moody´s, vegna lántöku fyrirtækisins upp á 500 milljónir dollara.  Innan við ári síðar sendi Moody´s reikning fyrir 5.000 dollara árgjaldi sem mundi síðan þrefaldast ef ekki yrðu gefin út skuldabréf það ár sem Moody´s þyrfti að meta.  Fyrirtækið greiddi þessa 5.000 dollara 2001 og ári síðar, þrefalda þá upphæð, 15.000 dollara en fékk litla sem enga þjónustu frá Moody´s það ár. 

Í sömu grein segir frá þýsku tryggingafyrirtæki, Hannover Re, sem neitaði að gerast áskrifandi að þjónustu Moody´s, sem hafði boðist til að meta fyrirtækið „endurgjaldslaust“.  Hannover Re var þá þegar að greiða tugmilljónir til annarra matsfyrirtækja fyrir samskonar mat.  Moody´s hóf engu að síður einhliða, og án aðgangs að mikilvægum trúnaðargögnum, að meta lánshæfi Hannover Re og gaf út mat sitt reglulega, um leið og það leitaði áfram eftir viðskiptum þess.  Með tímanum lækkaði það lánshæfi Hannover Re þó svo að önnur matsfyrirtæki með samninga við Hannover Re, S&P og A.M. Best, gæfu því góða einkunn.  Árið 2003 setti Moody´s skuldabréf  Hannover Re í ruslflokk.  Hluthafar fengu skituna og losuðu sig við hlutafé.  Á örfáum klukkustundum lækkaði markaðsvirði fyrirtækisins um 175 milljónir dollara.

Standard & Poors hefur hagað sér eins.  Lítið skólaumdæmi í Suðvesturríkjum Bandaríkjanna var komið í fjárhagsvandræði og hækkaði m.a. gjald fyrir skólamáltíðir.   Það hafði keypt þjónustu af Moody´s og S&P vegn lánshæfismats.  Gjaldið hjá S&P var hærra og til að spara fé var ákveðið að hætta með það.  Stuttu seinna hafði S&P samband og heimtaði greiðslu upp á 5.000 dollara ella mundi fyrirtækið draga útgefið mat sitt til baka.  Skólaumdæmið greiddi S&P uppsetta kröfu af ótta við að afleiðingarnar yrðu meiri ef S&P drægi mat sitt til baka.

Það skal aftur tekið fram hér að þessi grein sem vitnað er í að ofan er frá 2004 og er þriðji og síðasti hluti þriggja greina eftir Alex Klein, en hana má enn lesa og meira til á vef Washington Post hér.

Guðmundur Ásgeirsson kom með ágætar tilvitnanir í forstjóra þessara fyrirtækja á bloggi sínu 25.mars sl. sem ég hvet alla til að lesa.  Í stuttu máli firra forstjórarnir sig og sín fyrirtæki af allri ábyrgð af notkun á mati þeirra til að stofna til fjárskuldbindinga eða fjárfesta í aðilum sem mat beinist að!  Matið eru skoðanir fyrirtækjanna og ekkert annað og öll áskilja þau sér rétt til að draga það til baka hvenær sem er og án fyrirvara!  Þessu til stuðnings bera þeir við Fyrstu grein bandarísku stjórnarskrárinnar sem fjallar um málfrelsi fyrir þá sem ekki vita.  Og þar með bera þeir enga ábyrgð á orðum sínum.

Engu að síður lepja íslenskir fréttamenn þetta lánshæfismat upp frá hverjum þeim sem lætur þeim það í té gagnrýnislaust.

Er ekki kominn tími til að stoppa þessa vitleysu?


mbl.is Lánshæfiseinkunnir skipta máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Takk fyrir tilvísunina. Ég endurbirti þennan hluta af greininni sem sjálfstæðan pistil þar sem sýnt er fram á gagnsleysi lánshæfismats:

Matsfyrirtæki hafa viðurkennt gagnleysi sitt - bofs.blog.is 

Guðmundur Ásgeirsson, 6.4.2011 kl. 01:39

2 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Hvað er lánshæfi? Er það ekki hæfi einstaklings, fyrirækis eða þessvegna ríkis til að geta staðið í skilum á sínum skuldbindingum?

Ef lánshæfismat hækkar við að segja Já við Icesave en fer í ruslið ef svarið er Nei, er þá ekki verið að meta viljann til að greiða alveg burtséð frá getunni til þess? Hef aldrei upplifað það að vera metinn traustur greiðandi bara af því að eg vil greiða þegar allar forsendur sýna að ég muni aldrei geta greitt. 

Viðar Friðgeirsson, 6.4.2011 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband