#116. Glæsileg forgangsröðun

Fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarráði Kópavogs hefur lagt til að kannaðir verði möguleikar þess að Kópavogur verði borg en ekki bær, og kostir þess og gallar. Hann segist hafa kynnt sér málið fyrir nokkrum árum og komist að því að engar kvaðir séu á borgarnafninu, þ.e. ekki þurfi tiltekin fjölda íbúa, háskóla eða sjúkrahús. Því ætti vart neitt að vera því til fyrirstöðu að Kópavogur verði borg.

Er þetta nú það brýnt mál að eyða þurfi tíma bæjarstjórnar í að ræða þessa vitleysu? Verður Kópavogur eitthvað minna skuldugur þó menn spyrði borgartitli aftan við nafnið? Þessi þvæla lýsir íslenskri pólitík í hnotskurn. Smáborgaralegur hégómi þvælist fyrir brýnum hagsmunamálum.


mbl.is Kópavogsbær verði borg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Einhvers staðar segir, "við látum engan yfir okkur ráða, á Íslandi við getum verið kóngar allir hreint". Það er á okkur logið stærilætið og stórbokkahátturinn, útrásin og allt það. Ég held að það væri nær að sameina öll sjö sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og láta af hallærislegum draumum um smáborgir út um hvippinn og hvappinn með tilheyrandi kostnaði við yfirstjórn og dreifðar skipulagsdeildir og þess háttar. Í New York er bara einn borgarstjóri og ein borgarstjórn ásamt öllum sérsviðum borgarmála, en New York er nú líka svoddan smápleis miðað við Reykjavík, að maður tali nú ekki um Kópavog.

corvus corax, 15.6.2011 kl. 11:28

2 Smámynd: The Critic

Auðvitað á að sameina öll þessi sveitarfélög, öll þessi yfirbygging og smákóngaháttur er að kosta skattgreiðendur miljarða á ári. Það er nánast engin sem horfir á Kópavog sem bæ nema nokkrir smákóngar, Kópavogur er ekkert nema hverfi í Reykjavík.

The Critic, 15.6.2011 kl. 12:15

3 Smámynd: Matthildur Jóhannsdóttir

Eitt sinn heirði ég sögu af hreppstjóranum hér í nágranna bygði sem vildi frekar vera bæjarstjóri.

Og því gekk hann í málinn og fékk nýtt og flottara nafnspjald.

Borgarstjóri - eða - Bæjastjóri. Bæjarfulltrúi - Borgarfulltrúi.

Matthildur Jóhannsdóttir, 15.6.2011 kl. 15:06

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála ykkur ein borg og það Reykjavík á allt svæðið!

Sigurður Haraldsson, 15.6.2011 kl. 16:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband