#238. Heyrðu Víglundur.....!

Skuldar þú ekki ríkinu peninga, Víglundur? Hvar er þitt siðferði?!

Ég vil minna almenning á að Víglundur tók þátt í því, ásamt syni sínum Þorsteini og fleiri aðilum, að hirða Sementsverksmiðjuna af ríkinu fyrir skitnar 68 milljónir, en greiddi svo aldrei umsamið kaupverð!

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/12/03/12_milljonir_fyrir_sementsverksmidjuna/

Við kaupin var birgðastaðan um 400 milljónir, og hús og tæki metin á 1.000 milljónir. En rétt er að taka fram að á móti eignum voru nokkrar skuldir. Þar að auki átti SV hlut í Einingaverksmiðjunni sem metinn var á 211 milljónir. Fróðlegt væri að vita hvar sá eignarhlutur er í dag eftir gjaldþrot Íslenskts sements! Bara tækjaflotinn, sem fylgdi með í kaupunum fyrir 68 milljónir, og endaði svo reyndar að hluta í rekstri hjá BM Vallá, var líklega um helmingurinn af umsömdu kaupverði sem, þegar upp var staðið, var svo aldrei greitt ríkinu!

Hversu oft þurftir þú, Víglundur, að greiða inn á skuldir við Sementsverksmiðjuna áður en bílstjórunum var leyft að dæla meira sementi í tanka BM Vallár?! Og hvað ætli Sementsverksmiðjan hafi þurft að afskrifa háa skuld BM Vallár við gjaldþrotið?

Flottir svona pappakallar sem orga á torgum og gráta þegar þeirra eignir eru hirtar af þeim eftir að hafa spilað rassinn úr buxunum en hirða ríkiseignir í gegnum hlutafélög!

 


mbl.is „Þetta heldur náttúrulega engu vatni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sæll flott hjá þér að vekja máls á þessu. Það er ein flökkusaga sem gamla  DV fjallaði örlítið um og hætti mjög snögglega að viðra. Það er um lánveitingu frá Lífeyrissjóði Verslunarmanna, með grátkarlinn í stjórn LV, til Kaupþings í Lúxemburg uppá 3 milljarða króna. Kaupþing Lúx lánaði svo til ónefndra steypustöðvar kennda við rennandi vatnsfall sömu upphæð. En eins og ég sagði lífseig flökkusaga. Kv Gs.

Gulli (IP-tala skráð) 17.2.2015 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband