#249. Fabúleringar Gísla Marteins

Gísli Marteinn Baldursson skrifar pistil á vefsíðu sína, gislimarteinn.tumblr.com, þar sem hann tengir flugslys við Tungubakkaflugvöll á ómaklegan hátt við flug um Reykjavíkurflugvöll í áróðri sínum gegn flugvellinum í Vatnsmýrinni. Fyrirsögn greinarinnar er Áhætta fylgir flugvöllum. Í pistlinum birtir hann myndir þar sem búið er að merkja mögulegan slysstað inn á mynd af Reykjavík, norður af brautarenda 01, með samsvarandi vegalengd og slysstaðurinn var miðað við brautarenda Tungubakkaflugvallar.

tumblr_inline_nom130lK9M1qbla8w_1280

Fyrir ofan myndina er þessi texti: "Hér sést hvernig aðstæður hefðu verið ef þetta slys hefði hent við flugvöllinn í Vatnsmýri:"

tumblr_inline_nom1c3JUA51qbla8w_1280

Við þessa framsetningu er ýmislegt að athuga.

Fyrir það fyrsta er eðlilegt að bíða eftir skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið, áður en menn fara að fabúlera með þeim hætti sem Gísli Marteinn gerir í pistlinum, og heimfærir málsatvik upp á flug um Reykjavíkurflugvöll, algjörlega að ósekju.

Í öðru lagi sýna myndirnar í pistli GM að vélin fer niður 666m frá brautarenda á Tungubökkum. GM heimfærir þessa vegalengd á brautarenda 01 í Reykjavík og merkir mögulegan slysstað á Sóleyjargötu, nokkurn veginn til móts við Hljómskálann. Svona framsetning er mikil einföldun. Braut 01 í Reykjavík er með flugtaksvegalengd upp á eina 1567m. Flugbrautin á Tungubökkum er hins vegar alls um 500m löng. Heildarvegalengd frá upphafi flugtaksbruns á Tungubökkum að slysstað er um 1200m, miðað við framsetningu GM.  Bara þetta eitt sýnir að EF vélin hefði misst afl eftir flugtak á 01 hefði mögulega verið hægt að lenda aftur á braut 01, eða innan flugvallarsvæðisins. Mögulegur slysstaður við Hljómskálann er því hjómið eitt og hugarburður pistilritara.

reykjavik-01_1261432.png

Í þriðja lagi kveða almennar brottflugsreglur við Reykjavíkurflugvöll svo um að við brottflug skuli klifra á brautarstefnu að brautarenda áður en beygt er á krossvindslegg (AIP Iceland, 22 AUG 2014). Flugmaðurinn greindi sjálfur frá því í sjónvarpsviðtali að hann hefði tekið vinstri beygju eftir flugtak og ætlað að lenda aftur til austurs.

Í fjórða lagi er þessi ímyndaði slysstaður GM um 2200m frá upphafi flugtaksbruns af braut 01,.....

slys-01_1261431.png

..... á móti 1200m af Tungubökkum.

tungubakkar.png

Án þess að endanleg málstvik flugslyssins liggi fyrir er því vel mögulegt að við brottflug af braut 01, hefði vélin verið í mun meiri hæð yfir Tjörninni heldur en við brottflugið af Tungubökkum. Þar að auki ef flugmaðurinn hefði tekið 180° beygju á svipuðum stað frá flugtakspunkti af braut 01, til að lenda í gagnstæða átt á 19, hefði hugsanlega blasað við honum um 1500m löng flugbraut sem mögulega hefði verið hægt að lenda örugglega á, í stað þess að enda í sjónum.

Umfjöllun Gísla lýsir hinsvegar fáfræði hans um flug um Reykjavíkurflugvöll, og flug almennt, þó hann hafi eitt sinn starfað við pílagrímaflug sem flugþjónn. Flugslysið við Tungubakka er tengt Reykjavíkurfluvelli á ósmekklegan hátt til að þjóna sjónarmiðum GM, og hennar eini tilgangur er að grafa undan tilvist Reykjavíkurflugvallar, eins og öll önnur umfjöllun hans um flugvöllinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi Gísli Marteinn er flugheimskur en ekki fluggáfaður. Að láta sér detta í hug að skrifa svona vitleysu til að hræða fólk ætti að varða við lög.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 7.6.2015 kl. 09:59

2 Smámynd: Frosti Heimisson

Taktu líka eftir því hvernig hann sveigir aðflugsstefnuna að forsetabústaðnum, svona til að auka á dramatíkina.

Frosti Heimisson, 7.6.2015 kl. 18:24

3 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Mér finnst bara sorglegt að sjá hvernig hann dregur þetta flugslys við Tungubakka inn í umræðuna um flugvöllinn, sérstaklega þar sem rannsókn er ekki lokið, en þó svo væri væri það jafnósmekklegt. Þessi færsla hans er sennilega það lægsta sem hefur sést í þessari umræðu.

Erlingur Alfreð Jónsson, 7.6.2015 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband