#223. Breytt ferðatilhögun?
6.11.2014 | 16:30
Má ekki fara með stúlkurnar frá Egilstöðum á Reyki? Þurfa þær virkilega að fara heim til Reykjavíkur í millitíðinni?
Verður vísað úr Íslandsmótinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
#222. Okurbúllur í FLE!
5.11.2014 | 11:09
Verði verslun Fríhafnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar lögð niður mun verð á flestri vöru mjög líklega hækka. Ég hef nýlegt dæmi um þetta. Ég sá, og á endanum keypti, Gammel dags lakkríspoka frá Kólus hjá Eymundsson í brottfararbiðsal. Verðið var 699 kr. á poka. Upphaflega ætlaði ég ekki að kaupa hann vegna verðsins en þar sem ég var á hraðferð lét ég mig hafa það. Í suðurenda Flugstöðvar sá ég hins vegar sams konar poka í Fríhöfn á 329 kr. Verðmunurinn var því 112% í Flugstöðinni sjálfri. Athugun í netverslun Hagkaupa sýndi að sams konar poki var á 397 kr., og þar með 76% dýrari í verslun Eymundsson í Flugstöðinni. Þar sem ég var kominn í gegnum vegabréfaskoðun gafst mér ekki tækifæri á að fara og skila pokanum til Eymundsson.
Ég sendi því ábendingu til Eymundsson um þennan verðmun sem varð til þess að Eymundsson endurskoðaði í kjölfarið innkaups- og útsöluverðið á lakkríspokanum.
Í ljós kom að Eymundsson keypti vöruna inn á nánast sama verði og Hagkaup selur hana út á - en sama fyrirtæki sér um dreifingu til þeirra og Hagkaupa. Fríhöfnin fær vöruna afgreidda beint frá framleiðanda. Í framhaldi af þessari skoðun var krafist lægra innkaupaverðs og Eymundsson lækkaði verðið í samræmi við það í framhaldinu niður í 499 kr.
Í sömu ferð ætlaði ég að kaupa mér morgunmat, litla flösku (33cl?) af Trópi appelsínusafa og smurðan croissant með skinku og osti í Bistro Atlantic bar í suðurenda. Þegar afgreiðslustúlkan hvað verðið á þessu tvennu vera 970 kr. ákvað ég að láta kyrrt liggja og hætti snarlega við kaupin.
Verð hjá öllum aðilum í FLE er fáranlega hátt þrátt fyrir að vera undanþegið VSK, en hafa þarf í huga að í staðinn koma ýmis aukagjöld sem taka þarf tillit til, eins og eflaust skimunargjald, því alla vöru sem er til sölu á öryggissvæði flugstöðvarinnar þarf að skima áður en hún fer inn. En flest vara í verslunum FLE er engu að síður seld á okurverði og langt frá því að undanþága frá VSK skili sér til neytenda.
Fríhöfnin verði lögð niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
#221. Mannlaus þjónusta?
2.11.2014 | 10:10
Fréttin um nýja flýtibílaþjónustu í Höfðatorgi er lítið annað en fréttatilkynning og auglýsing á nýrri þjónustu. Þetta er svo sem vel þekkt af mbl.is og reyndar fleiri fréttamiðlum. Fréttamaðurinn virðist lítið hafa gert í að vinna vinnuna sína. Lítið er upplýst hvernig þjónustan eigi að framkvæmast né hvernig staðið verði að tryggingum, og ekki síður hver ábyrgist að ástand bílanna sé lögum samkvæmt. Í fréttinni kemur nefnilega fram að þjónustan eigi að vera með lágmarkstilkostnaði og mögulega eigi að nota símann til að opna bílinn. Verður þetta þar með mannlaus þjónusta þar sem enginn starfsmaður skoðar bílinn þegar honum er skilað og tryggir að hann sé í notkunarhæfu ástandi fyrir næsta notanda? Hver verður ábyrgur fyrir skemmdum og hvernig verður slíkt meðhöndlað þegar bílnum er skilað?
Við þekkjum öll vel hugsunarhátt náungans að tilkynna ekki ef eitthvað fer úrskeiðis, t.d. skemmdir eða bilanir. Á endanum er öll ábyrgð á ástandi bílsins þegar hann er í notkun á ábyrgð ökumannsins, ekki þjónustuaðilans.
Nú kemur væntanlega einhver og segir að þetta verði ekkert öðruvísi en með bílaleigur, sem eflaust getur verið rétt, en er þá einhver munur á þessari þjónustu og venjulegum bílaleigum? Má þá kannski bara alveg eins nota leigubíl og fara til Spánar fyrir mismuninn?
Flýtibílaþjónusta á Höfðatorg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)