Höfundur
Erlingur Alfreð Jónsson
Þrjóskur, þver, þversum en um leið sanngjarn. Tekur rökum en ekki endilega sönsum. Hafnar rökleysu, þvætingi, bulli, yfirgangi, frekju, óheiðarleika, lygum. Vill ekki kynnast lygurum, frekjum, fávitum og vitleysingum. Tjáir skoðanir sínar hér á mönnum og málefnum sem ekki endilega eru þær réttu en eiga þó rétt á sér. Er leikmaður, ólöglærður, en reynir að byggja málflutning á staðreyndum. Ætlar ekki að opna Facebook síðu. Allar fullyrðingar settar fram af mér á þessari síðu eru mínar sjálfstæðu skoðanir og túlkanir eftir skoðun á málefninu. Þær þurfa ekki að vera réttar en þó er reynt að móta þær af staðreyndum mála.
Var sá 3,781,074,142 á lífi við fæðingu og númer 77,970,589,398 frá upphafi vega.
Eldri færslur
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
#128. Hver er þessi einhver og hver var/er eigandi hússins???
22.8.2011 | 09:12
Landlæknisembættið fluttist að Austurstönd í ársbyrjun 2003. Er þessi einhver sem Gutti vísar til kannski Jón Kristjánsson sem var heilbrigðisráðherra frá 14. apríl 2001 - 23. maí 2003? Jóni hefði alla vega átt að vera kunnugt um slíkan leigusamning. Hvers vegna er hann einfaldlega ekki spurður og hvers vegna kemur ekki fram hver er eigandi þessa húsnæðis á Austurströnd? Hverjum voru tryggðar leigutekjur til ársins 2027 og er sá hinn sami enn eigandi að húsinu? Vakna fréttamenn!!
Vandamálið óuppsegjanlegur samningur til 25 ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fréttir | Breytt s.d. kl. 09:13 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Skjöl
- Almennir samningsskilmálar bílasamnings SP-Fjármögnunar Almennir samningsskilmálar bílasamnings SP-Fjármögnunar. Ég mæli með að skjalinu sé hlaðið niður og það skoða með Adobe Reader. Afsakið hvað það er óskýrt.
- Auglýsingabæklingur SP um fjármögnun bifreiða Auglýsingabæklingur SP um fjármögnun bifreiða. Ég mæli með að skjalinu sé hlaðið niður og skoðað með Adobe Reader
- Ársreikningur SP - Fjármögnunar hf 2007 Ársreikningur SP - Fjármögnunar hf 2007 með litmmerktum texta og mínum athugasemdum.
- Ársreikningur SP 2008 Ársreikningr SP-Fjármögnunar hf. fyrir árið 2008
- Dreifibréf FME til fjármálafyrirtækja Dreifibréf FME til fjármálafyrirtækja vegna setningu laga nr. 161/2002
- Grein í MBL um stjórnarskrárbrot Grein í BML um stjórnarskrárbrot í 8.gr. almennra samningsskilmála bílasamnings SP-Fjármögnunar hf.
- Lög um neytendalán nr. 121/1994 Lög um neytendalán með áherslum vegna hugleiðinga um bílalán
- Orðasafn starfsmanna fjármálafyrirtækja Orð og hugtök um viðfangsefni starfsmanna fjármálafyrirtækja
- Svar Avant til FME Svar Avant við upplýsingabeiðni Fjármálaeftirlitsins vegna uppgjörs í kjölfar riftunar samnings.
- Svar Íslandsbanka Fjármögnunar til FME Svar Íslandsbanka Fjármögnunar við upplýsingabeiðni Fjármálaeftirlitsins vegna uppgjörs í kjölfar riftunar samnings.
- Svar Lýsingar til FME Svar Lýsingar hf. við upplýsingabeiðni Fjármálaeftirlitsins vegna uppgjörs í kjölfar riftunar samnings.
- Svar SP-Fjármögnunar hf. til FME Svar SP-Fjármögnunar hf. við upplýsingabeiðni Fjármálaeftirlitsins vegna uppgjörs í kjölfar riftunar samnings.
- Tilkynning SP til FME í maí 2003 Tilkynning SP til FME í maí 2003 um starfsleyfiskylda starfsemi sína
- Tilkynning SP til FME í júlí 2004 Tilkynning SP til FME í júlí 2004 um starfsleyfiskylda starfsemi sína
- Tilkynning SP til FME í janúar 2005 Tilkynning SP til FME í janúar 2005 um starfsleyfiskylda starfsemi sína
- Tilkynning SP til FME í júlí 2005 Tilkynning SP til FME í júlí 2005 um starfsleyfiskylda starfsemi sína
- Tilkynning SP til FME í janúar 2006 Tilkynning SP til FME í janúar 2006 um starfsleyfiskylda starfsemi sína
- Tilskipun ESB um neytendavernd og óréttmæta viðskiptahætti Tilskipun ESB með áherslum á athyglisverð ákvæði sem athuga má með bílalán í huga
- Tilskipun ESB um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán
- Yfirlit allra starfsleyfa lánastofnana Heildaryfirlit starfsleyfa lánastofnana af vef FME. Ég mæli með að skjali sé hlaðið niður og skoða með Adobe Reader.
- Yfirlit starfsleyfis Avant frá 2007 Yfirlit á starfsleyfi Avant frá 2007, skv. skjali af vef FME. Ég mæli með að skjalinu sé hlaðið niður og skoðað með Adobe Reader.
- Yfirlit starfsleyfis Lýsingar frá 2007 Yfirlit á starfsleyfi Lýsingar frá 2007, skv. skjali af vef FME. Ég mæli með að skjalinu sé hlaðið niður og skoðað með Adobe Reader.
- Yfirlit starfsleyfis SP-Fjármögnunar hf. frá 2007 Yfirlit á starfsleyfi SP-Fjarmögnunar frá 2007, skv. skjali af vef FME. Ég mæli með að skjalinu sé hlaðið niður og skoðað með Adobe Reader.
Ýmsir
- Dómur Evrópudómstólsins nr. C-76/10 Dómur Evrópudómstólsins nr. C-76/10 þar sem lántökukostnaður á neytendaláni var felldur niður þar sem árlega hlutfallstölu vantaði.
- Frétt Eyjunnar um tæknilegt gjaldþrot SP Frétt Eyjunnar 6.júlí 2010 um tæknilegt gjaldþrot SP í árslok 2008
- Frétt Stöðvar 2 um myntkörfulán SP. Frétt Stöðvar 2 þ. 6. apríl 2010 um myntkörfulán SP.
- IFRI - Tillögur um úrbætur á fjármálakerfi Íslands. IFRI er hópur áhugamanna um breytingar og umbætur á núverandi peninga- og fjármálakerfi
- Samantekt vegna umræðu um gengistryggð lán Samantekt af svipan.is á umræðu um gengistryggð lán
- Topplistinn Listi yfir vefsíður
- Vefur SP-Fjármögnunar Vefur SP-Fjármögnunar hf.
Færsluflokkar
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
sko hérna eeeeh, svarið sem þaggað hefur niður í öllum fréttamönnum hingað til, dugar kannski hér,hmmm, hérna sko.... fæðuöryggi ? duuuuuhh!
drilli, 22.8.2011 kl. 11:14
Erlingur, í hverju felst "glæpurinn" að gera langan leigusamning fyrir ríkistofnun sem með tiltölulega stöðuga starfsemi. Þetta hefur áreiðanlega verið tiltölulega hagkvæmur samningur miðað við það sem var árið 2007. Hefði samningurinn bara verið til 5 ára hefði þurft að endurnýja hann 2007 þegar leiguverð hafði hækkað almennt um heilan helling frá 2002.
Mistökil ligja í að endursemja ekki eða finna önnur not fyrir húsnæðið áður en starfsemin var flutt. Eins og staðan er í dag er engin hagræðing í sameiningunni.
Mér þykir Guðbjart setja aðeins niður við að kenna einhverjum starfsmönnum frá 2002 um þetta klúður.
Landfari, 22.8.2011 kl. 11:33
Samningurinn var auðvitað gerður til að tryggja velferð húseigandans og sá hefur lofað einhverjum greiðslum til einhvers 4 flokksins í staðinn. Húsnæðið hentaði aldrei Landlæknisembættinu og það vildi ekki fara þarna inn.
Einar Guðjónsson, 22.8.2011 kl. 11:55
Hvað hefurðu fyrir þér í þessum fulyrðingum Einar?
Landfari, 22.8.2011 kl. 12:03
Í fljótu bragði sýnist mér eigandi Neshúsa ehf sem á umrætt húsnæði vera Pétur Kjartansson lögmaður og framkvæmdastjóri og fyrrverandi stjórnarmaður í Heimdalli með Geir H Haarde ofl
Jón Ágúst (IP-tala skráð) 22.8.2011 kl. 13:28
Þessi leiga er 100% hærri en eðlilegt var árið 2003 og húsið að auki úr alfaraleið. Svona '' viðskipti'' eiga að vera refsiverð.
Einar Guðjónsson, 22.8.2011 kl. 15:08
@Landfari: Ég minnist ekki á neitt "brot" eða "glæp" í færslunni og ekki er heldur ýjað að slíku. Þetta er hins vegar frekar óeðlilegt að binda hendur ríkis með þessum hætti því að tímabundnum leigusamningi lýkur ekki nema á umsömdum degi nema sérstakar aðstæður heimili uppsögn sbr. 58.gr.húsaleigulaga. Ótímabundinn leigusamningur hefur hins vegar uppsagnarákvæði sbr. 56.gr. sömu laga sem hér segir: Sex mánuðir af beggja hálfu á atvinnuhúsnæði fyrstu fimm ár leigutímans, níu mánuðir næstu fimm ár og síðan eitt ár eftir tíu ára leigutíma. Því má segja að "glæpurinn" sé sá að hafa gert tímabundinn samning í svona langan tíma því ég efast um að ríkið hafi fengið einhver hagstæðari kjör vegna þessa langa leigutíma.
Anars beinist ádeila mín fyrst og fremst að bitlausum fréttaflutningi í málinu samanber þau atriði sem ég nefni og gætu upplýst málið frekar en hef ekki séð svörin við. Þau koma vonandi síðar. Að sama skapi má líka spyrja hvort og þá hverjum er verið að bjarga með því að endurnýta Heilsuverndarstöðina með þessum flutningi.
Erlingur Alfreð Jónsson, 22.8.2011 kl. 15:10
Ef Einar hefur rétt fyrir sér hér að ofan þá nálgast þessi samingur nú að vera glæpsamlegur.
Spurningin er hvort hann getur vísað í tölur þessu til staðfestingar.
En Erlingur ef eðlilegur samningur hefð verið gerður 2002 þá þarf ekkert að vera óeðlilegt að hann sé gerður til lengri tíma og getur komið sér vel. Það er ekkert heppilegt eins og ég hef áður sagt að þurfa að flytja bara vegna þess að stofnun eða fyrirtæki missir húsnæðið við uppsögn leigu. Breytir ekki öllu hvort uppsögnin er 6 eða 12 mánuðir, það kostar jafn mikið að flytja.
Landfari, 22.8.2011 kl. 18:15
Leiga er skammtímalausn í eðli sínu. Ef ríkið vill ekki búa við óvissu vegna hættu á húsnæðismissi á það að byggja eða kaupa húsnæði sem afskrifast á lengri tíma. Slíkt húsnæði er þá eign hverrar verðmæti er hægt að endurheimta með sölu sé þess þörf.
Erlingur Alfreð Jónsson, 22.8.2011 kl. 21:44
Þett er alrangt hjá þér Erlingur að leiga sé í eðli sínu skamtímalausn. Það sem hefur hinsvegar vantað hér er almennilegur leigumarkaður bæði fyrir íbúðahúsnæði og atvinnuhúsnæði.
Það er þó kominn vísir að þessu í atvinnuhúsnæðinu. Það er í mjög mörgum tilfellum skinsamlegra að nota peningana í rekstur fyrirtækisins og vöruþróun en steinstepu.
Sama gildir um íbúðahúsnæði. Ef maður getur fengið öruggt leiguhúsnæði þá er það ekkert óvitlaust að búa í leiguhúsnæði. Það hafa nú margirð fengið að reyna undanfarið og hefðu betur leigt en keypt.
Landfari, 22.8.2011 kl. 22:28
Jamm, fréttamennirnir ættu kannski að spyrja í leiðinni hvers vegna Guðbjartur þurfti endilega að flytja af Austurströndinni og í dýrari leigu.
Og um lengd leigusamnings Sjúkratrygginga sem hann samdi um sjálfur nýlega....
Svona fyrst hann er nú að slá um sig í einhverju umkenningarleik. Frekar ódýrt.
Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 23.8.2011 kl. 07:11
@Landfari: Fasteignakaup hafa um langt skeið verið talin til sparnaðarforms á Íslandi. Fólk byggir yfir sig og sína til að fá öryggi, myndar þar með eign sem hefur eitthvert verðmæti og hægt er að innleysa síðar. Það er grundvallarhugsunin. Leiga er hins vegar einungis rekstrarliður, engin eign myndast sem hægt er að sækja í á síðari tímum. Hún er þess vegna skammtímalausn í eðli sínu. Fyrir þann sem er alltaf á faraldsfæti og ætlar ekki að festa rætur þar sem hann ber niður hentar hún að sjálfsögðu sem langtímalausn.
Það sem hins vegar gerðist hér í bönkunum eftir 2002-3 á ekkert skylt við eðlilega viðskiptahætti á fjármagnsmarkaði.
En gangi þér vel að vera leigjandi áfram. Á leigumarkaði græðir bara eigandinn að mínu mati.
Erlingur Alfreð Jónsson, 23.8.2011 kl. 11:07
Það fer nú alveg eftir því hvað leigan er há hvoert leigusalinn græðir eða ekki. Eins og leigan er í dag er ekki spurning að það borgar sig að leigja.
Hugsunarháttur eins og þinn er frá þeim tíma þegar ekki var hægt að spara nokkurn pening nema festa hann í steisteypu. Þeir tímar eru sem betur fer að baki, þökk sé verðtryggingunni.
Á þróuðum leigumarkaði eins og er til í löndunum í kringum okkur ertu ekki að fá neitt öryggi með því að eiga húsnæði frekar en leigja, nema síður sé.
Það er bara hérna sem allt er miðað við einhverja skamtímaleigu meðan leigusalinn er að reyna að selja íbúðina eða er ínámi erlendis eða tímabundinni vinnu. Erlendis leigirðu íbúð og meðan þú stendur við þitt hefurðu íbúðina. Getur jafnvel sækkað eða minkað við þig eftir aðstæðum án teljansi rasks ef önnur íbúð losnar í blokkinni.
Eigandi íbúðina ertu alltaf í hættu með auka útgjöld vegna óvæntra uppákoma enda húsin mörg hver gömul. Reyndar skolst mér að t.d. í Stokkhólmi áttu annað hvort blokkina eða leigir. Greiðir eitthvert íbúðarréttargjald sem þú getur selt þegar þú flytur en borgar mánaðarlega leigu. Sennilega eitthvað svipað og Búseti eða Búmenn hér.
Landfari, 23.8.2011 kl. 13:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.