Færsluflokkur: Fréttir
#224. Framkvæmdastjóri á hálfum strætó?
8.11.2014 | 13:15
Fréttamenn mbl.is virðast stundum hafa litla þörf að leita eftir nákvæmum upplýsingum við vinnslu frétta. Oft er texti fréttatilkynninga einungis afritaður beint en ekki kafað nánar í fréttina. Í umræddri frétt er tilgreint að verð bíls framkvæmdastjórans hafi verið á annan tug milljóna. Því getur verið um 11-19 milljónir króna að ræða en fréttamaður afritar einungis texta úr fundargerð Strætó ummálið en sér ekki ástæðu til að kanna það nánar eða veita nánari upplýisngar. Ekki kemur fram í frétt eða fundargerð hvort um nýjan eða notaðan bíl er að ræða eða hvaðan bíllinn var keyptur. Því er ekki óvarlegt að áætla að um nýjan bíl frá umboðsaðila hafi verið að ræða.
Þegar verðlisti Mercedes Benz jeppa er skoðaður á vef umboðsaðilans Öskju má sjá að aðeins einn jeppi er með grunnverð á þessu verðbili, Mercedes Benz GL, grunnverð kr. 15.290.000.
Í þessu sambandi er rétt að benda á að í sumar samdi Strætó bs. um kaup á 20 nýjum strætisvögnum fyrir 690 milljónir króna. Benz jeppi framkvæmdastjórans kostaði því mögulega sem nemur hálfum nýjum strætisvagni.
Full ástæða hefði verið fyrir fréttamann að athuga nánar hvað þarna hafi verið á ferðinni þegar yfirmaður byggðasamlags verður uppvís að því að bruðla með opinbert fé í eigin þágu, og veita lesendum og eigendum Strætó bs. nákvæmari upplýsingar.
Viðbót 16:40: Nú seinni partinn rak ég augun í frétt á Vísir.is um sama mál, en hafði verið birt snemma í morgun, þar sem fram kemur að bifreiðin umrædda hafi verð árgerð 2014 og keypt af bílaleigunni Hertz, fyrir 10,2 milljónir króna. Mikið mættu fréttamenn mbl.is taka sér þessi vinnubrögð til fyrirmyndar og skila nákvæmari upplýsingum til lesenda sinna.
Strætó skilar bíl framkvæmdastjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
#223. Breytt ferðatilhögun?
6.11.2014 | 16:30
Má ekki fara með stúlkurnar frá Egilstöðum á Reyki? Þurfa þær virkilega að fara heim til Reykjavíkur í millitíðinni?
Verður vísað úr Íslandsmótinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
#222. Okurbúllur í FLE!
5.11.2014 | 11:09
Verði verslun Fríhafnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar lögð niður mun verð á flestri vöru mjög líklega hækka. Ég hef nýlegt dæmi um þetta. Ég sá, og á endanum keypti, Gammel dags lakkríspoka frá Kólus hjá Eymundsson í brottfararbiðsal. Verðið var 699 kr. á poka. Upphaflega ætlaði ég ekki að kaupa hann vegna verðsins en þar sem ég var á hraðferð lét ég mig hafa það. Í suðurenda Flugstöðvar sá ég hins vegar sams konar poka í Fríhöfn á 329 kr. Verðmunurinn var því 112% í Flugstöðinni sjálfri. Athugun í netverslun Hagkaupa sýndi að sams konar poki var á 397 kr., og þar með 76% dýrari í verslun Eymundsson í Flugstöðinni. Þar sem ég var kominn í gegnum vegabréfaskoðun gafst mér ekki tækifæri á að fara og skila pokanum til Eymundsson.
Ég sendi því ábendingu til Eymundsson um þennan verðmun sem varð til þess að Eymundsson endurskoðaði í kjölfarið innkaups- og útsöluverðið á lakkríspokanum.
Í ljós kom að Eymundsson keypti vöruna inn á nánast sama verði og Hagkaup selur hana út á - en sama fyrirtæki sér um dreifingu til þeirra og Hagkaupa. Fríhöfnin fær vöruna afgreidda beint frá framleiðanda. Í framhaldi af þessari skoðun var krafist lægra innkaupaverðs og Eymundsson lækkaði verðið í samræmi við það í framhaldinu niður í 499 kr.
Í sömu ferð ætlaði ég að kaupa mér morgunmat, litla flösku (33cl?) af Trópi appelsínusafa og smurðan croissant með skinku og osti í Bistro Atlantic bar í suðurenda. Þegar afgreiðslustúlkan hvað verðið á þessu tvennu vera 970 kr. ákvað ég að láta kyrrt liggja og hætti snarlega við kaupin.
Verð hjá öllum aðilum í FLE er fáranlega hátt þrátt fyrir að vera undanþegið VSK, en hafa þarf í huga að í staðinn koma ýmis aukagjöld sem taka þarf tillit til, eins og eflaust skimunargjald, því alla vöru sem er til sölu á öryggissvæði flugstöðvarinnar þarf að skima áður en hún fer inn. En flest vara í verslunum FLE er engu að síður seld á okurverði og langt frá því að undanþága frá VSK skili sér til neytenda.
Fríhöfnin verði lögð niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
#221. Mannlaus þjónusta?
2.11.2014 | 10:10
Fréttin um nýja flýtibílaþjónustu í Höfðatorgi er lítið annað en fréttatilkynning og auglýsing á nýrri þjónustu. Þetta er svo sem vel þekkt af mbl.is og reyndar fleiri fréttamiðlum. Fréttamaðurinn virðist lítið hafa gert í að vinna vinnuna sína. Lítið er upplýst hvernig þjónustan eigi að framkvæmast né hvernig staðið verði að tryggingum, og ekki síður hver ábyrgist að ástand bílanna sé lögum samkvæmt. Í fréttinni kemur nefnilega fram að þjónustan eigi að vera með lágmarkstilkostnaði og mögulega eigi að nota símann til að opna bílinn. Verður þetta þar með mannlaus þjónusta þar sem enginn starfsmaður skoðar bílinn þegar honum er skilað og tryggir að hann sé í notkunarhæfu ástandi fyrir næsta notanda? Hver verður ábyrgur fyrir skemmdum og hvernig verður slíkt meðhöndlað þegar bílnum er skilað?
Við þekkjum öll vel hugsunarhátt náungans að tilkynna ekki ef eitthvað fer úrskeiðis, t.d. skemmdir eða bilanir. Á endanum er öll ábyrgð á ástandi bílsins þegar hann er í notkun á ábyrgð ökumannsins, ekki þjónustuaðilans.
Nú kemur væntanlega einhver og segir að þetta verði ekkert öðruvísi en með bílaleigur, sem eflaust getur verið rétt, en er þá einhver munur á þessari þjónustu og venjulegum bílaleigum? Má þá kannski bara alveg eins nota leigubíl og fara til Spánar fyrir mismuninn?
Flýtibílaþjónusta á Höfðatorg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
#220. Leiðinleg mynd
29.10.2014 | 19:18
Ég horfði á þessa margrómuðu mynd, Hross í oss, í flugvél á leiðinni heim frá New York um daginn, og mér fannst hún leiðinleg. Það besta við hana er að hún var ekki nema um ca. klukkutími og kortér að lengd. Þar að auki kann ég ekki sérstaklega vel við Ingvar Sigurðsson, mér finnst hann, eins og reyndar allflestir íslenskir leikarar ofleika flest hlutverk.
Hross í oss verðlaunuð í Stokkhólmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
#218. Fljótgert!
12.10.2014 | 10:28
Eins og ég benti á í gær kemur ekki á óvart að síðan sé komin upp aftur. Einfaldlega var skipt um hýsingaraðila og hún nú hýst í Svíþjóð undir sama léni, khilafah.is. Einfalt mál!
Nú er ég fjarri því að styðja ISIS eða þeirra gjörðir á nokkurn hátt en vegna þessa máls er hins vegar rétt að velta fyrir sér rétti hýsingaraðila til að loka vefsíðu með tilliti til tjáningarfrelsis. Var eitthvað á síðunni sem brýtur í bága við íslensk lög? Er íslensk löggjöf í stakk búin að taka á slíkum atriðum, m.a. með tilliti til eiganda léns eins og í þessu tilviki?
Þetta er nú meira tjáningarfrelsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
#217. Tvö orð um Lýsingu!
11.10.2014 | 21:01
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
#216. Verður komin á vefinn innan skamms.
11.10.2014 | 20:39
Ég spái því að umrædd vefsíða, khilafah.is, verði líklega komin í loftið, ef ekki strax á morgun, þá í síðasta lagi á mánudag. Hýsingin verður einfaldlega færð annað.
Hins vegar væri ahyglisvert að vita hvaða viðskiptaskilmálar Thor Data Center væru brotnir. Er ástæðan sú að um glæpasamtök er að ræða? Hvað þá með hýsingaraðila íslensku bankanna? :-)
Vefsíðunni hefur verið lokað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
#215. Heimska
11.10.2014 | 10:38
Datt engum í hug að labba frá þessari umræðu í fjörunni og láta dýrið í friði? Nei, kallað var til fjöldi aðila, þ.á.m. frá Náttúrufræðastofu Kópavogs og Hjálparsveit skáta til að koma dýrinu af steininum. Ætli þeir hafi verið stoltir eftir dugnaðinn, björgunarsveitarmennirnir sem mættu til þess að "bjarga" dýrinu þar sem það flatmagaði á steini á háfjöru? Innan 6 tíma hefði flætt að og dýrið farið sína leið. Þetta var nú meiri fíflagangurinn.
Selur í sjálfheldu í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
#214. Varúð!
13.9.2014 | 20:05
Neytendum skal bent á að útlánafyrirtækið Lykill er í eigu Lýsingar hf., og var upphaflega sett á stofn innan MP banka af fyrrverandi framkvæmdastjóra SP-Fjármögnunar hf. Bæði þessi fyrirtæki voru í fararbroddi þegar neytendum voru seldir ólöglegir fjármálagjörningar í formi bílalána og fjármögnunarsamninga. Eins og kemur fram á heimasíðu Lýsingar, er núverandi forstöðumaður fyrrum starfsmaður SP-Fjármögnunar.
Það er því rétt að þeir sem hyggjast eiga viðskipti við Lykil lesi vel samningsskilmála bílalána Lykils áður en skrifað er undir samning við fyrirtækið.
90% lán til bifreiðakaupa komin aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fréttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)